Býrð þú í Svíþjóð og vinnur um borð í skipi sem er skráð í öðru norrænu landi og sem siglir á alþjóðaleiðum?
Þessar upplýsingar eru ætlaðar þér sem býrð í Svíþjóð og vinnur um borð í skipi sem er skráð í öðru norrænu landi og sem siglir á alþjóðaleiðum. Hér er eingöngu fjallað um skattlagningu af launum fyrir slíkt starf.
Alþjóðaleiðir
Með hugtakinu á alþjóðaleiðum er átt við alla skipaflutninga nema þegar skipið er eingöngu í siglingum milli staða í einu norrænu landi.
Skattlagning í öðru norrænu landi
Þú ert skattskyldur í því norræna landi sem skipið er skráð í.
Ef þú vinnur um borð í skipi sem er leigt út á án áhafnar þ.e. á svokölluðum „bareboat bases" af útgerð í öðru norrænu landi, ert þú skattskyldur í því landi sem útgerðin er skráð í.
Skattlagning í Svíþjóð
Þú greiðir ekki skatt af tekjunum í Svíþjóð og þær hafa heldur ekki áhrif á skattlagningu annarra tekna sem þú kannt að hafa.
Upplýsingar um skattlagningu tekna af vinnu um borð í skipi sem sinnir verkefnum á norsku eða dönsku landgrunni finnur þú undir fyrirsögninni „Býrð þú í Svíþjóð og vinnur á dönsku eða norsku landgrunni".
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem segja til um hvar þú átt að vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við Försäkringskassan í Svíþjóð eða Tryggingastofnun í skráningarlandi skipsins til að fá nánari upplýsingar.