Býrð þú í Svíþjóð og hefur vaxtatekjur/vaxtagjöld frá öðru norrænu landi?
Þessar upplýsingar eru ætlaðar þér sem býrð í Svíþjóð og færð vaxtatekjur eða greiðir vaxtagjöld í öðru norrænu landi og fjalla eingöngu um skattlagningu af þeim tekjum/gjöldum.
Vaxtatekjur:
Vaxtatekjur af inneignum í fjármálastofnunum, af verðbréfum, skuldabréfum og öðru álíka, sem fengnar eru frá öðru norrænu landi skattleggjast eingöngu í Svíþjóð.
Hafi skatturinn fyrir mistök verið dreginn af í greiðslulandinu, getur þú fengið hann endurgreiddan. Hafðu samband við viðkomandi fjármálastofnun eða skattayfirvöld til að fá frekari upplýsingar.
Vextir eru skattlagðir sem fjármagnstekjur og skattprósentan er 30%.
Vaxtagjöld:
Ef þú ert búsettur í Svíþjóð, eru vaxtagjöld þín jafnt af innlendum sem erlendum lánum, frádráttarbær þar.