Dæmi um skattaútreikning - 2019
Hér getur þú séð hvað mikið einstaklingur sem býr á Íslandi greiðir í skatt miðað við mismunandi launa- eða lífeyristekjur.
Útreikningurinn miðast við einstakling sem :
- býr á Íslandi allt árið
- er yfir 16 ára að aldri, ógiftur og ekki með barn á framfæri
- hefur eingöngu launa- eða lífeyristekjur frá Íslandi
- borgar ekki kirkjuskatt (hefur enga þýðingu fyrir Ísland)
Við útreikninginn er stuðst við staðgreiðsluprósentuna á launatekjur sem er í tveim þrepum 36.94% og 46.24% á árinu 2019, allt eftir heildartekjum.
Taflan hér að neðan sýnir skatt hjá einstaklingi sem er eingöngu með launatekjur og sem greiðir 4% af tekjum sínum í lífeyrissjóð (skylda). Ath. Lífeyrisgreiðslur eru ekki skattskyldar fyrr en við útborgun þeirra.
Launatekjur á ári | Lífeyrissjóðs- frádráttur |
Persónu- afsláttur |
Endanlegur skattur |
1.700.000 | 68.000 | 677.358 | 0 |
3.400.000 | 136.000 | 677.358 | 528.363 |
6.800.000 | 272.000 | 677.358 | 1.734.085 |
8.500.000 | 340.000 | 677.358 | 2.336.565 |
Taflan hér að neðan sýnir skatt hjá einstaklingi sem er eingöngu með lífeyristekjur (lífeyrisþegar greiða ekki í lífeyrissjóð).
Lífeyristekjur á ári | Lífeyrissjóðs- frádráttur |
Persónu- afsláttur |
Endanlegur skattur |
1.700.000 | - | 677.358 | 0 |
3.400.000 | - | 677.358 | 578.602 |
6.800.000 | - | 677.358 | 1.834.562 |
8.500.000 | - | 677.358 | 2.462.542 |
Þú gætir verið með annan frádrátt frá skatti sem getur haft áhrif á útreikninginn. Þú getur reiknað út skattinn þinn hér