Býrð þú á Íslandi og starfar á dönsku eða norsku landgrunni?
Þessar upplýsingar eiga við þig sem ert búsettur á Íslandi og færð laun frá vinnuveitanda sem rekur starfsemi á dönsku eða norsku landgrunni. Hér er aðeins fjallað um skattlagningu vegna slíkra starfa.
Skattlagning í Danmörku eða Noregi
Þú ert skattlagður í Danmörku eða Noregi ef þú vinnur á dönsku eða norsku landgrunni lengur en 30 daga á 12 mánaða tímabili og ef vinnuveitandi þinn stundar starfsemi í tengslum við undirbúningskönnun, rannsóknir eða hagnýtingu kolvetnisauðlinda. Þetta á einnig við um laun vegna vinnu á skipi sem notað er við starfsemi í tengslum við undirbúningskönnun, rannsóknir eða hagnýtingu kolvetnisauðlinda á dönsku eða norsku landgrunni.
30-daga reglan á ekki við þegar þú starfar um borð í skipi sem nýtt er til flutninga á mannafla eða búnaði, eða um borð í dráttarbát, birgðaskipi eða öðrum aðstoðarskipum og sá sem notar skipið er búsettur í einhverju Norðurlandanna. Í slíkum tilvikum eru launin skattskyld í því norræna landi sem sá sem notar skipið er búsettur. Ef sá sem notar skipið er búsettur í landi utan Norðurlandanna, gildir 30-daga reglan.
Skattlagning á Íslandi
Þú ert skattskyldur á Íslandi ef vinnutíminn nær ekki 30 dögum á 12 mánaða tímabili, en annars skattleggst þú eingöngu í Noregi ef þú vinnur á norsku landgrunni og eingöngu í Danmörku ef þú vinnur á dönsku landgrunni. Sama gildir ef þú vinnur umborð í skipi sem notað er við starfsemi í tengslum við undirbúningskönnun, rannsóknir eða hagnýtingu kolvetnisauðlinda á dönsku eða norsku landgrunni.
Þegar þú aftur á móti starfar um borð í norrænu skipi sem nýtt er til flutninga á mannafla eða búnaði eða um borð í dráttarbát, birgðarskipi eða öðrum aðstoðarskipum ert þú skattlagður á Íslandi af launatekjunum. Ef þú hefur verið skattlagður í vinnulandinu, eru skattar reiknaðir á allar tekjurnar, bæði íslenskar og erlendar, en síðan lækkaðir miðað við hlutfall erlendu teknanna í heildartekjunum.
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem kveða á um hvar þú skulir vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við Tryggingastofnun á Íslandi (tr.is) eða tryggingastofnun í vinnulandinu til að fá nánari upplýsingar.