Býrð þú í Noregi og starfar um borð í flugvél í öðru norrænu landi?
Þetta á við um þig sem býrð í Noregi og ætlar að vinna um borð í flugvél í eigu norræns flugfélags í öðru norrænu landi. Upplýsingarnar fjalla eingöngu um skattlagningu tekna af þeirri starfsemi.
Skattlagning í því landi sem þú hefur ráðningarsamning í
Launin eru undanþegin skattlagningu í því landi sem þú ert ráðinn í. Þetta á bæði við um innanlandsflug sem og flug á alþjóðaleiðum.
Skattlagning í Noregi
Tekjurnar eru skattskyldar í Noregi. Hafir þú fengið greidda dagpeninga vegna kostnaðar sem tengist vinnu þinni, skal skattskyldur hluti dagpeningana reiknast samkvæmt norskum skattalögum.
Þú átt að telja fram launin og skattskyldan hluta dagpeningana í norska framtalinu.
Almannatryggingar
Það eru í gildi sérstakar reglur sem kveða á um hvar þú skulir vera tryggður. Þú þarft að hafa samband við NAV í Noregi eða sambærilega stofnun í því landi sem þú hefur ráðningarsamning í, til að fá nánari upplýsingar.