Skattkort
Ef þú ert skattskyld(ur) í Noregi skal vinnuveitandi draga skatt af laununum við hverja útborgun launa.
Allir sem hafa skattskyldar launatekjur verða að hafa skattkort. Skattkortið gefur til kynna hve mikill skattur skuli dreginn af laununum. Ef þú hefur mjög lágar tekjur geturðu fengið fríkort. Ef þú skilar ekki skattkorti eða fríkorti til vinnuveitandans eða skilar ekki skattkorti þegar skattleysismörkum er náð skal vinnuveitandi draga 50 prósenta skatt af tekjum þínum.
Sá skattur sem vinnuveitandi dregur frá verður gerður upp miðað við endanlega álagðan skatt í júní eða október árið eftir tekjuárið.
Pöntun á skattkorti og fríkorti
Þú getur pantað afrit af skattkorti og skilað eyðublaði vegna pöntunar á skattkorti og fríkorti á www.skatteetaten.no eða með SMS. Þú getur einnig snúið þér til skattstofunnar.
Þegar þú pantar á netinu gefurðu upp fæðingarnúmer þitt og færð svo skattkortið sent í pósti. Ef þú pantar með SMS ritarðu annað hvort KOPI, SKJEMA eða FRIKORT fæðingarnúmer (11 tölustafir) og sendir það á 02111. Þú greiðir aðeins venjulegt gjald fyrir sendinguna.
Þú átt alltaf að skila skattkortinu til vinnuveitanda. Þegar þú hættir í starfi skal vinnuveitandi skila þér aftur skattkortinu. Ef þú hefur fríkort verðurðu að gæta þess að vinnuveitandi hafi fært greidd laun á bakhlið kortsins.
Yfirfærsla á skattgreiðslum á milli norrænu landanna (aðstoðarsamningurinn)
Þegar þú stundar vinnu í öðru norrænu landi en þú ert búsettur, fyrir vinnuveitanda sem einnig er heimilisfastur í heimalandi þínu, skalt annað hvort þú eða vinnuveitandi þinn skila eyðublaðinu NT 1 eða NT 2 til skattstofunnar. Það er gert til að hægt sé að standa skil af staðgreiðslu í réttu landi. Nota skal eyðublaðið NT 1 þegar skattlagning á að eiga sér þar sem þú býrð, t.d. ef þú dvelur skemur en 183 daga í vinnuríkinu. Nota skal eyðublaðið NT 2 þegar skattlagningin skal eiga sér stað í vinnuríkinu, t.d. ef launagreiðandinn hefur fasta atvinnustöð í vinnuríkinu, eða í vissum tilvikum þegar þetta er spurning um útleigu á vinnuafli.
Í vissum tilvikum geta skattyfirvöld yfirfært skattgreiðslur á milli landa samkvæmt aðstoðarsamningnum. Samningurinn felur í sér að ef í ljós kemur að skattur, sem haldið hefur verið eftir af launatekjum í einu norrænu ríki, á í raun að greiðast í öðru norrænu ríki, skal fyrrnefnda ríkið yfirfæra skattinn til þess ríkis. Millifærður skattur skal greiðast tímanlega þannig að þú þurfir ekki greiða kostnað og vexti af millifærðu skattgreiðslunum.
Í þeim tilvikum sem millifærði skatturinn nægir ekki fyrir skattgreiðslunum í hinu landinu þá þarft þú sjálfur að greiða mismuninn með tilheyrandi kostnaði og vöxtum af þeim hluta greiðslunnar.