Nordisk eTax

Skattkort

Þeir sem flytja lögheimili sitt til Íslands fá sent skattkort þegar gengið hefur verið frá skráningu hjá Þjóðskrá. Þeir sem koma til tímabundinnar dvalar og hafa fengið kennitölu hjá Þjóðskrá þurfa að sækja um skattkort hjá ríkisskattstjóra. Umsóknareyðublaðið, RSK 14.04 má sækja á netinu, www.rsk.is.

Hvað er skattkort?

Skattkortið veitir rétt til persónuafsláttar. Hjá þeim sem koma til tímabundinnar dvalar gildir kortið á meðan á dvölinni stendur. Dvalartími miðast við dagafjölda samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Dvalartími reiknast frá og með komudegi til og með þeim degi er  flutt er af landi brott. Til dvalartíma í þessu sambandi telst eðlileg fjarvera frá landinu vegna orlofs og þess háttar, falli hún innan dvalartímans.

Afhenda þarf launagreiðanda kortið strax í upphafi vinnutímabils til að hann geti notað það við útreikning á staðgreiðslu skatts við fyrstu útborgun launa. Hafi launagreiðandi ekki skattkort getur hann ekki tekið tillit til persónuafsláttar við útreikning skattsins. 

Yfirfærsla á skattgreiðslum á milli norrænu landanna (aðstoðarsamningurinn)

Þegar þú stundar vinnu í öðru norrænu landi en þar sem þú ert búsettur, fyrir vinnuveitanda sem einnig er heimilisfastur í heimalandi þínu, skal annað hvort þú eða vinnuveitandi þinn skila eyðublaðinu NT 1 eða NT 2 til skattstofunnar sem vinnuveitandinn tilheyrir. Það er gert til að hægt sé að standa skil á staðgreiðslu í réttu landi. Nota skal eyðublaðið NT 1 þegar skattlagning á að eiga sér stað þar sem þú býrð, t.d. ef þú dvelur skemur en 183 daga í vinnuríkinu. Nota skal eyðublaðið NT 2 þegar skattlagningin skal eiga sér stað í vinnuríkinu, t.d. ef launagreiðandinn hefur fasta atvinnustöð í vinnuríkinu, eða um er að ræða útleigu á vinnuafli.

Í vissum tilvikum geta skattyfirvöld yfirfært skattgreiðslur á milli landa samkvæmt aðstoðarsamningnum. Samningurinn felur í sér að ef í ljós kemur að skattur, sem haldið hefur verið eftir af launatekjum í einu norrænu ríki, á í raun að greiðast í öðru norrænu ríki, skal fyrrnefnda ríkið yfirfæra skattinn til þess ríkis. Yfirfærður skattur skal greiðast tímanlega þannig að þú þurfir ekki að greiða kostnað og vexti af yfirfærðu skattgreiðslunum.

Ef yfirfærði skatturinn nægir ekki fyrir skattgreiðslunum í hinu landinu þá þarft þú sjálfur að greiða mismuninn með tilheyrandi kostnaði og vöxtum af þeim hluta greiðslunnar.